Gæðamál
Gæðamál eru mikilvægustu markmið
fyrirtækisins og stefnir fyrirtækið á að fá
staðfestingu á ISO 9001 gæðastaðlinum.
Það hefur ávallt verið markmið fyrirtækisins
að veita góða og trygga þjónustu og haga
úrvinnslu verkefna með þeim hætti að
fyrirtækið skili verkefnum sínum á réttum
tíma, og að gæði
verkefnanna séu
samkvæmt
staðalkröfum og
væntingum kaupenda.
Með hæfu og faglega sinnuðu starfsfólki,
góðum tækjabúnaði og vönduðum
áætlanagerðum, vill fyrirtækið tryggja
fagleg vinnubrögð og lágmarks verð.
Ánægðir viðskiptavinir eru okkar mál.
Umhverfismál
Við tökum tillit til umhverfisins við vinnu
okkar og leggjum áherslu á góðan frágang
lagnakerfa og jarðrasks.
Rusli, efnisafgöngum og öðrum úrgangi frá
verkefnum okkar, komum við í viðeigandi
eyðingu.
Hráefnisval okkar tekur mið
af umhverfisvænum áhrifum
auk þess sem við leggjum
áherslu á góða og
skynsamlega nýtingu hráefnis.
Við erum meðvituð um orkunotkun og í
verkefnum okkar leggjum við áherslu á að
stýra og draga úr orkunotkun og
rekstrarkostnaði lagnakerfanna.
Þessum markmiðum viljum við ná með gerð
gæða- og umverfisáætlana á byggingarstað.
Starfsmanna- og öryggismál
Það er stefna fyrirtækisins að tryggja sem best öryggi starfsmanna á vinnustað, með því að fræða starfsfólk um öryggisþætti og notkun persónuhlífa og tryggja að notaður sé viðeigandi öryggisbúnaður og farið að öryggiskröfum á vinnustað.
Með því að framkvæma kerfisbundið eftirlit með véla- og tæknibúnaði viljum við draga úr áhættu á vinnuslysum.Þessum markmiðum viljum við ná með gerð öryggis- og heilbrigðisáætlunar fyrir byggingarvinnustaði.
Við förum að Vinnuverndarlögum og sköpum starfsfólki okkar góð vinnuskilyrði með það markmið að hafa ánægt starfsfólk og góðan starfsanda.
Trúnaðarlæknir veitir fyrirtækinu ráðgjöf varðandi læknisfræðileg málefni og heilbrigðisstefnu fyrirtækisins m.a. með því að gera úttekt og áhættumat á vinnuumhverfi þess, með það að markmiði að draga úr vinnuslysum og bæta heilsufarslegt umhverfi starfsmanna.
Ttrúnaðarlæklnir veitir ráðgjöf vegna fjarvista starfsmanna í veikinda- og slysatilfellum, meðal annars varðandi læknisvottorð.
Trúnaðarlæknir fyrirtækisins er Jakob Pétur Jóhannesson.